Eyrnasuð (Tinnitus) – hvað er til ráða!
Eyrnasuð (Tinnitus) er algengur kvilli og herjar á fólk á öllum aldri. Flestir hafa fundið fyrir tímabundnu eyrnasuði, einhvern tíma yfir ævina án þess að leita sér aðstoðar vegna þess. Suðið er mun algengara hjá körlum en konum og eykst tíðni þess meðfram því að aldurinn færist yfir. Oft tengist eyrnasuð heyrnarskerðingu. Eyrnasuð er ekki hættulegt og er sjaldgjæft að sé svo alvarlegt að það hafi áhrif á starfsgetu og almenn lífsgæði. En hjá sumum getur suðið verið stöðugt og algjörlega óþolandi.
Suðið getur verið af tvennum toga, hlutlægt eða huglægt. Ef um hlutlægt suð er að ræða er hljóðið mælanlegt og oftast eru orsök þess lélegt eða hægt blóðflæði á eyrnasvæðinu. Huglægt suð er mun algengara, þá heyrir viðkomandi suðið en það er ekki mælanlegt í þar til gerðum mælitækjum.
Orsakirnar fyrir eyrnasuði geta verið margar, en helstar eru skaði vegna hávaða og áhrifa lyfja. Mjög mörg lyf geta valdið eyrnasuði, helst ber að nefna aspirín og magnýl. Taugasjúkdómar geta sumir valdið eyrnasuði, blóðþrýstingsójafnvægi, ofnæmi og sykursýki einnig. Eins höfuðáverkar og ýmsar sýkingar t.d. eyrnabólga, heilahimnubólga og sýkingar í kjálkum og tönnum. Einnig af hverskonar andlegu álagi.
Hómópatía hefur oft reynst vel við þessum hvimleiða kvilla. Hér að neðan eru nokkrar remedíur nefndar, en tekið skal fram að ávallt er heillavænlegast að ráðfæra sig við reyndan hómópata til að tryggja að rétta remedían verði fyrir valinu.
Calcarea carbonica: Oft eru engin önnur einkenni fyrir utan eyrnasuð, en stundum fylgir svimi. Heyrnarskerðing eða brakhljóð og sláttartilfinning gæti verið í eyranu. Viðkomandi er oftast kulvís, þreytist auðveldlega og sækir í sætindi. Oft úrvinda og áhyggjufullur einstaklingur.
Cimicifuga: Viðkomandi er mjög viðkvæmur fyrir hávaða. Algengt er að viðkomandi þjáist einnig af verkjum og vöðvaspennu í hálsi og baki. Oft kraftmiklir einstaklingar sem tala mikið, en verða daprir og draga sig í hlé þegar þeir verða veikir eða hafa gengið mjög á sína orku. Oft fylgja höfuðverkir og tíðarvandamál hjá konum.
Lycopodium: Hummandi, ærandi suð í eyra og skert heyrn. Hljóð virðast bergmála í eyranu. Eyrnabólga með útskilnaði úr eyra, krónísk meltingarvandamál og þvagfærasýkingar eru vandamál sem viðkomandi gæti oft verið að glíma við.
Örfá atriði sem hægt er að hafa í huga til að reyna sjálf/ur til að losa um eyrnasuð eru t.d.:
- Láta athuga tennur, sýking aftarlega í munni eða kjálka getur leitt til bólgu upp í eyrnaganginn sem veldur þá þrýstingi og oft suði í eyra.
- Kanna með blóðflæði því ef blóðráðs er hæg/léleg væri ráð að meðhöndla það einnig, inntaka á t.d. Gingo Biloba sem örvar blóðflæði getur reynst vel við Tinnitus.
Auðveld og ódýr uppskrift úr eldhúsinu, sem gæti reynst vel gegn Tinnitus:
Settu 3-4 hvíta lauka í pott með sjóðandi vatni og láttu malla í u.þ.b. 5 mínútur eða þar til laukarnir verða mjúkir.
Skerðu laukana til helminga og kreistu safann úr þeim. Best er að setja safann í glas með dropateljara. Látið kólna.
Setjið 2-3 dropa í eyrað 2-3 sinnum í viku.
Lauksafinn er mjög sótthreinsandi og dregur úr bólgum. Margir sem hafa þjáðst af eyrnasuði vegna sýkinga hafa alveg losnað við kvillann á stuttum tíma eftir að hafa byrjað að nota lauksafann sem eyrnadropa.
Guðný Ósk Diðriksdóttir tók saman.
2 Responses to Eyrnasuð (Tinnitus) – hvað er til ráða!
Leave a Reply Cancel reply
Flokkað efni
- Börnin okkar (28)
- Heildræn heilsa (78)
- Húsdýrin (4)
- Karlar (37)
- Konur (43)
- Meðganga og fæðing (11)
- Næring (6)
- Remedíumyndir (28)
- Sýkingar og slappleiki (14)
- Vefjasölt (13)
Safn
- April 2013 (2)
- March 2013 (3)
- February 2013 (2)
- January 2013 (1)
- December 2012 (1)
- September 2012 (1)
- July 2012 (1)
- June 2012 (2)
- May 2012 (4)
- April 2012 (4)
- March 2012 (4)
- February 2012 (3)
- January 2012 (3)
- December 2011 (2)
- November 2011 (4)
- October 2011 (6)
- September 2011 (3)
- August 2011 (6)
- June 2011 (1)
- May 2011 (6)
- April 2011 (3)
- March 2011 (7)
- February 2011 (8)
- January 2011 (9)
- December 2010 (8)
- November 2010 (9)



Góðan daginn. Mig langar að bæta við að eyrnasuð getur einnig verið fylgjandi heilaæxli. Það hef ég reynt sjálf.
Með þökk fyrir góðar og fræðandi greinar,
Berglind.
Kærar þakkir Berglind fyrir þessa viðbót og þakkir fyrir falleg orð til greinahöfunda okkar á h2.
Hafðu það sem allra best með von um að þín veikindi séu yfirstaðin og þú full heilsu á ný.
Kveðja,
htveir – heildræn heilsa