Fótaóeirð er ástand sem að sýnir sig sem mjög mikil óþægindi í fótunum.  Algengast er að þessi einkenni komi, með ómótstæðilegri þörf fyrir að hreyfa fæturna, þegar verið er að reyna að sofna.  Stundum róar það fæturna að hreyfa þá, en oftast bara í stuttan tíma.

Margar orsakir hafa verið eyrnamerktar þessu vandamáli, en ekki hefur enn verið sannað hvað það er í raun sem veldur því.  Til dæmis hefur það komið í ljós, að í sumum fjölskyldum virðist þetta algengara en hjá öðrum.  Því má leiða að því líkur, að þetta sé arfgengt.  Einnig hefur verið nefnt að blóðskortur, járnskortur, nýrnasjúkdómar, meðganga, gigt, sykursýki og Parkinson´s geti tengst þessu vandamáli.  Samt sem áður hafa fæstir af þeim sem greinast með fótaóeirð, eitthvað af ofantöldum vandamálum.  Ójafnvægi í járnbúskap blóðsins og dópamínefni heilans gætu verið orsökin, en til að vera viss um að svo sé, þarf að gera mun meiri rannsóknir á fleiri tilfellum.

Tilfinningunni í fótunum er oftast lýst sem óþægindum, en stundum sem kvalarfullum verkjum.  Algengt er að heyra lýsingarorð eins og kitlandi, skríðandi, potandi, pikkandi eða eins og nálardofi upp eftir leggjunum.

Þetta gerist nánast alltaf þegar að fæturnir eru í hvíld.  Fæturnir fara að hoppa og kastast til með óviljastýrðum hreyfingum, eftir að viðkomandi sofnar.  Þetta veldur því mjög oft að viðkomandi, sem er rétt nýsofnaður og vaknar upp við þetta, á í erfiðleikum með að sofna aftur og vandamálið stækkar og við bætist, slæmur svefn.  Því leyðir það oft til mikillar þreytu og óþæginda hjá viðkomandi yfir daginn og getur haft töluverð áhrif á allt hans líf og líðan.

Hæfilegar og reglulegar æfingar og góðar teygjur gætu dregið úr einkennunum.  Eins ætti að forðast koffíndrykki og reykingar.  Gott mataræði, sem að inniheldur nægjanlegt magn af steinefnum getur líka hjálpað.  Sérstaklega skal gæta þess að magnesium og járnbúskapur líkamans sé nægur.

Hér að neðan er listi af nokkrum remedíum sem að hafa reynst vel við einkennum fótaóeirðar, en tekið skal fram að ávallt er heillavænlegast að leita sér aðstoðar hjá reyndum hómópata, til að auka líkur á að rétt remedía sé valin:

Remedíur sem hafa gagnast vel við fótaóeirð:

Ammonium carbonicum • Arsenicum album • Rhus toxicodendron • Tarentula hispanica • Zincum metallicum

Ef fótaóeirð er verri á kvöldin:

Tarentula hispanica • Zincum metallicum

Ef fótaóeirð er verri fyrir svefn:

Arsenicum album • Lycopodium • Natrum muriaticum • Tarentula hispanica

Guðný Ósk Diðriksdóttir tók saman.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

ARSENICUM

ARSENICUM

Er sérlega góð remedía gegn magakveisu eins og þeirri sem gjarnan verður vart á ferðalögum. Dæmigerð einkenni eru iðrakvef með niðurgangi, kviðverkir, mikill þorsti þó aðeins hægt að drekka í litlum sopum, mikill kuldahrollur, erfitt að halda á sér hita og ef til vill sótthiti.
ACONITUM NAPPELUS

ACONITUM NAPPELUS

Gagnast mjög vel í öllum neyðartilvikum og einnig á fyrstu stigum sýkingar svo sem í upphafi kvefs, hálsbólgu eða eyrnaverks, einkum ef kaldur og þurr vindur eða mengun í andrúmslofti er líkleg orsök.
HEPAR SULPHURIS

HEPAR SULPHURIS

Frábær remedía gegn sýkingum sem í er þroti og gjarnan vilsar úr, jafnvel illa lyktandi gröftur. Mikil viðkvæmni fyrir snertingu og kulda. Skerandi/nístandi sársauki fylgir þessum einkennum.

Erotik Film
Erotik film izle
Ankara evden eve nakliyat
Erotik Film
Sinema izle
hacklink
backlink
hack