Andlitsnudd
Það að eldast finnst mörgum ógn og sumir óttast þá staðreynd að líkami þeirra slappist og hreyfigeta minnki. Almennt velta karlmenn ekki mikið fyrir sér hvort og hvenær hrukkur í andlitinu byrja að myndast en hjá mörgum konum er það þeirra mesta ógn eftir því sem árin líða. Margar hverjar eyða miklum upphæðum í alls kyns undrakrem, sem samkvæmt auglýsingum á að halda húð kvenna unglegri, nánast um aldur og ævi. Í mörgum af þessum kremum, eru mikil eiturefni sem safnast fyrir í líkamanum.
Algengt einkenni slíkrar uppsöfnunar er óþol á parabenum, sem fyrirfinnst í flestum snyrtivörum og sýnir sig sem kláði. Kláðinn getur dreifst um allan líkama og jafnvel geta myndast bólguhellur með miklum kláða í hársverði .
En er eitthvað annað í boði fyrir konur og menn sem hræðast andlitshrukkur sem fylgja því að eldast. Já, svarið er andlitsleikfimi!
Líkt og önnur hreyfing mótar líkamann, þá getur andlitsleikfimi og andlitsnudd mótað vöðvana í andlitinu og aukið blóðflæðið þannig að húðin heldur betur teygjanleika sínum og kemur í veg fyrir hrukkur, bólgur og poka. Besti tíminn til að stunda andlitsleikfimi er þegar húðin er hreinsuð á kvöldin. Gott andlitsnudd, hrein og vel hirt húð, sýnir fljótt augljósan árangur.
Í hvert sinn sem að þú þrýstir á eða nuddar einhvern líkamspart, þá kemur þú af stað aukinni blóðrás á því svæði. Andlitið er þar engin undantekning. Mjúkur þrýstingur og nudd á andlitið losar um spennu í andlitsvöðunum og leyfir þeim að slaka. Með síendurteknum andlitsæfingum og nuddi, verða vöðvarnir slakir og ásýndin verður afslappaðri og unglegri. Með nuddinu eykst svo blóðrásin og verður andlitið allt bjartara ásýndar og glóir af vellíðan.
Góð aðferð til að nudda og efla andlitsvöðvana er að nota fingurgómana með léttum slætti á andlitið, þetta hjálpar sogæðunum að hreinsa húðina og losa um stífluð svæði og henda út úrgangsefnum sem að hafa safnast fyrir.
Byrjið á því að nudda með þessum létta slætti undir hökunni. Best er að nota yfirborð naglanna á þetta svæði, fram og til baka, undir og meðfram hökunni og að enda kjálkans, frekar hratt og taktfast. Þetta hjálpar við að síður myndast undirhaka og eykur blóðstreymið um svæðið. Haldið áfram að kjálkaenda í átt að eyrunum, upp andlitið og í kringum munninn, byrjið í sömu átt og sólargangurinn og svo í öfuga átt. Athugið að um leið og komið er uppá andlitið eru fingurgómarnir notaðir.
Þá er haldið áfram í kringum augabrúnirnar og í kringum kinnbeinin. Ekki nota þessa sláttaraðferð í kringum augun, því húðin þar í kring er of þunn og viðkvæm. Til að nudda ennið, skal byrja á gagnaugunum og færa fingurgómana svo að miðju enni og aftur til baka, þar til allt ennið hefur fengið sinn skammt af nuddi upp að hárlínu. Að lokum skal annaðhvort nota fingurgóma áfram eða kjúkur, framan á fingrum frá kjúkum að yfirborði nagla og byrja undir kinnbeinum og færa sig í átt að eyrunum. Alltaf skal passa að nota léttan slátt og oftast fingurgómana.
Þessar æfingar og nudd ættu að öllum líkindum að gera andlitsvöðvunum mikið gagn og alveg þess virði að prófa. Mikilvægt er að drekka nóg af vatni daglega til að forða húðinni frá ofþornun.
Hins vegar, er einnig góð leið að líta fram hjá því að hrukkur séu ellimerki og hreinlega fagna hverri einustu nýrri hrukku með það í huga, að á bak við hverja þeirra liggur reynsla og mikill þroski.
Í morgun,
sá ég konu.
Þakkláta konu.
Fallega konu,
með óreglulegar línur
sem dreifðu sér um andlit hennar.
Línurnar sögðu sögu.
Sögu um lífsskeið
hlaðið ævintýrum.
Á morgun
hlusta ég á fleiri ævintýri
- í speglinum!
GOD 2010
Flokkað efni
- Börnin okkar (28)
- Heildræn heilsa (78)
- Húsdýrin (4)
- Karlar (37)
- Konur (43)
- Meðganga og fæðing (11)
- Næring (6)
- Remedíumyndir (28)
- Sýkingar og slappleiki (14)
- Vefjasölt (13)
Safn
- April 2013 (2)
- March 2013 (3)
- February 2013 (2)
- January 2013 (1)
- December 2012 (1)
- September 2012 (1)
- July 2012 (1)
- June 2012 (2)
- May 2012 (4)
- April 2012 (4)
- March 2012 (4)
- February 2012 (3)
- January 2012 (3)
- December 2011 (2)
- November 2011 (4)
- October 2011 (6)
- September 2011 (3)
- August 2011 (6)
- June 2011 (1)
- May 2011 (6)
- April 2011 (3)
- March 2011 (7)
- February 2011 (8)
- January 2011 (9)
- December 2010 (8)
- November 2010 (9)



