Gleði og hamingja, ásamt öðrum jákvæðum tilfinningum, hafa mun meiri áhrif á heilsuna en nokkurn tíma áður hefur verið talið.

Rannsóknir hafa sýnt að þeir sem eru hamingjusamir, lífsglaðir og jákvæðir, verði síður veikir en þeir sem eru oftar neikvæðir. Einnig hafa rannsóknir sýnt að þegar jákvæðir einstaklingar verða veikir, upplifa þeir færri og mildari einkenni en hinir neikvæðari.

Lífið er svo miklu skemmtilegra ef að við lifum því jákvæð. Það er alltof stutt til að eyða því í leiðindi og neikvæðni. Vitandi það að veikindi herji síður á líkama þeirra sem eru jákvæðir, ætti að styrkja enn fremur viljann til að tileinka sér jákvæðni í gegnum lífið.

Donald nokkur Clifton þróaði skemmtilega ímyndarhugleiðingu sem gjarnan er nefnd “kenningin um ausuna og fötuna”. Þessi hugleiðing snýst um að við eigum öll okkar myndrænu, ósýnilegu fötu sem við tökum með okkur hvert sem við förum. Í fötunni geymum við tilfinningar okkar. Fatan fyllist af jákvæðum samskiptum eins og klappi á bakið eða fallegum orðum í okkar garð, oftast litlum hlutum. Okkur líður frábærlega þegar fatan okkar er full, og hörmulega þegar hún er tóm. Því meira sem er í fötunni okkar, því auðveldara verður að deila umframmagninu með öðrum.

Við ímyndum okkur líka ósýnilega ausu sem við getum notað til að fylla fötur annarra, en þegar við fyllum fötur annarra fyllum við einnig á okkar eigin fötu. Þannig dreifum við jákvæðari orku allt í kringum okkur.

Donald skrifaði bók um þessa kenningu sína, “How Full is Your Bucket?” Hún segir frá nokkrum mikilvægum leiðum til að fylla fötuna sína.

Í fyrsta lagi er mikilvægt að koma í veg fyrir að fata manns tæmist með því að spyrja sjálfan sig hvort maður sé að fylla eða tæma fötu annarra. Ertu að gera stöðugt grín að einhverjum? Bendir þú fólki aðeins á það sem það gerir rangt?

Í öðru lagi er gott að beina orkunni og athyglinni að því sem er jákvætt í stað þess að einblína á hið neikvæða. Maður þarf að segja að minnsta kosti fimm jákvæða hluti við fólk áður en maður getur sagt eitthvað neikvætt. Sálfræðingurinn John Gottman komst að því í merkilegri rannsókn að hjónabönd endast ekki ef hlutföllin eru ekki betri en eitt jákvætt á móti einu neikvæðu.

Í þriðja lagi er mikilvægt að eignast bestu vini þar sem þau sambönd leiða til aukinnar ánægju. Segðu fólki í kringum þig að þér þyki vænt um það og hvers vegna. Veittu öðrum stuðning og hvatningu og vertu sá sem það getur leitað til.

Í fjórða lagi er um að gera að gefa óvæntar gjafir, sem geta verið hlutir, traust, virðing, ábyrgð eða hrós. Það að fá óvænta gjöf fyllir fötuna óvæntri orku.

Síðast en ekki síst er mikilvægt að snúa gullnu reglunni við: Að koma fram við aðra eins og þeir vilja að þú komir fram við þá.

Jákvæðar hugsanir geta orðið að venju alveg eins og neikvæðar hugsanir. Þar sem líf okkar allra tvinnast saman er mikilvægt að einblína á hið jákvæða og njóta samskiptanna við annað fólk. Jákvæðni veitir almenna gleði og hamingju, ásamt því að verja líkama okkar fyrir ágangi flensupesta.

Það er svo sannarlega betri kostur að lifa lífinu hamingjusamur og lifandi í gleði og jákvæðni.

Einnar mínútu skapvonska rænir 60 dýrmætum gleðisekúndum úr lífi okkar !

Guðný Ósk Diðriksdóttir tók saman.

Leave a Reply

Your email address will not be published. Required fields are marked *

*

You may use these HTML tags and attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <strike> <strong>

ARSENICUM

ARSENICUM

Er sérlega góð remedía gegn magakveisu eins og þeirri sem gjarnan verður vart á ferðalögum. Dæmigerð einkenni eru iðrakvef með niðurgangi, kviðverkir, mikill þorsti þó aðeins hægt að drekka í litlum sopum, mikill kuldahrollur, erfitt að halda á sér hita og ef til vill sótthiti.
ACONITUM NAPPELUS

ACONITUM NAPPELUS

Gagnast mjög vel í öllum neyðartilvikum og einnig á fyrstu stigum sýkingar svo sem í upphafi kvefs, hálsbólgu eða eyrnaverks, einkum ef kaldur og þurr vindur eða mengun í andrúmslofti er líkleg orsök.
HEPAR SULPHURIS

HEPAR SULPHURIS

Frábær remedía gegn sýkingum sem í er þroti og gjarnan vilsar úr, jafnvel illa lyktandi gröftur. Mikil viðkvæmni fyrir snertingu og kulda. Skerandi/nístandi sársauki fylgir þessum einkennum.

Erotik Film
Erotik film izle
Ankara evden eve nakliyat
Erotik Film
Sinema izle
hacklink
backlink
hack