“Hreyfing, samvera og spjall”
Gönguhópur Heildrænnar heilsu “Hreyfing, samvera og spjall”
Sú hefð að halda októbermánuð sem sérstakan Meistaramánuð virðist hafa fest sig í sessi og eru margir sem taka þessari áskorun fagnandi. Þetta skemmtilega átak er öllum opið og hver og einn setur sér markmið við hæfi þennan mánuð. Oftar en ekki snúast markmiðin um að efla heilsuna, líða betur og njóta lífsins, hvort heldur er með hreyfingu eða betra mataræði.
Við hjá Heildrænni heilsu styðjum þetta átak heilshugar, en ætlum ekki að láta staðar numið með markmiðasetingu fyrir október, heldur að halda áfram með okkar markmið í allan vetur.
Eitt af okkar markmiðum er regluleg hreyfing og því þykir okkur tilvalið að stofna gönguhóp til að fleiri geti notið með okkur. Góðir göngutúrar og notaleg samvera með öðrum sem hafa gaman af að hittast, spjalla og ganga saman er okkar markmið í vetur.
Við ætlum að ganga saman víðs vegar á höfuðborgarsvæðinu í 30 – 60 mínútur í senn. Öllum er velkomið að koma og ganga með okkur og eru bæði börn og þægir hundar velkomnir með í göngurnar. Við ætlum að hittast annan hvern miðvikudag kl. 17:30. Staðsetning hverrar göngu verður alltaf auglýst með góðum fyrirvara hér á heimasíðunni og á Facebook.
Gönguhópur Heildrænnar heilsu fór í fyrstu gönguna “Hreyfing, samvera og spjall” miðvikudaginn 5. nóvember síðastliðinn. Þá var hist á bílastæðinu við Perluna og gengið um Öskjuhlíðarsvæðið (3.5 -4 km) og tók gangan u.þ.b. 45 mínútur. Einnig höfum við gengið um Laugardalinn frá Skautahöllinni, Fossvogsdalinn og Elliðárdalinn.
Göngurnar eru ætlaðar allri fjölskyldunni – pabbar, mömmur, afar, ömmur, börn og þægir hundar.
Við hlökkum til að sjá ykkur.
Guðrún Tinna Thorlacius og Guðný Ósk Diðriksdóttir
www.heildraenheilsa.is
www.htveir.is
www.facebook.com/HeildraenHeilsa.h2
Sjálfshjálparbækurnar Meðganga og fæðing með hómópatíu og Barnið og uppvaxtarárin með hómópatíu, er hægt að nálgast í vefsölu www.htveir.is
Flokkað efni
- Börnin okkar (71)
- Fréttir (17)
- Heildræn heilsa (157)
- Hreyfing (9)
- Húsdýrin (9)
- Karlar (90)
- Konur (100)
- Meðganga og fæðing (14)
- Næring og uppskriftir (41)
- Remedíur (37)
- Sálgæsla (1)
- Sýkingar og slappleiki (38)
- Vefjasölt (15)